Ásgeir lenti í 36.sæti Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 30 Maí 2010 18:37
Þá er heimsbikarmótinu í USA lokið og hafnaði Ásgeir í 36.sæti í fríbyssunni. Fínn árangur hjá honum en hann skoraði 536 stig sem er talsvert frá hans besta árangri en þetta var hans fyrsta heimsbikarmót í fríbyssu. Nú er bara að bretta upp ermar og undirbúa sig fyrir næsta mót.
AddThis Social Bookmark Button
 
Sumaropnun tekur gildi Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 27 Maí 2010 11:17
Nú er sumaropnun svæða félagsins komin í framkvæmd. Lokað verður í Egilshöllinni í sumar nema að opið verður kl.19-21 á fimmtudögum í júní og ágúst. Við opnum svo aftur í október. Á Álfsnesi verður opið kl.16 til 21 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Á miðvikudögum verður opið frá kl.12 til 21 og svo á laugardögum kl.10 til 18. Mótahald getur truflað þetta eitthvað og eins sérgreinaæfingar en vonandi verður það í lágmarki.
AddThis Social Bookmark Button
 
Reykjavíkurmeistarar 2010 í loftbyssu Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 26 Maí 2010 23:45
Reykjavíkurmeistarar 2010 eru eftirtaldir: Í loftriffli karla Guðmundur Helgi Christensen, í loftriffli og loftskammbyssu kvenna Jórunn Harðardóttir og i loftskammbyssu karla Guðmundur Kr. Gíslason. Á Meistaramóti Reykjavíkur sem haldið var í Egilshöllinni í kvöld var keppt um þessa titla. Nánari úrslit eru hérna.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir keppir á sunnudaginn í USA Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 25 Maí 2010 20:56
Keppnin í Fríbyssu á heimsbikarmótinu í USA fer fram á sunnudaginn kl.16:30 að íslenskum tíma.
AddThis Social Bookmark Button
 
Reykjavíkurmótið í loftbyssu á morgun Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 25 Maí 2010 20:21

Á morgun, miðvikudag, fer fram Reykjavíkurmótið í loftbyssugreinunum í Egilshöllinni. Mótið hefst uppúr kl. 16:00 og stendur til kl.20:00. 

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir lenti í 23.sæti í USA Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 25 Maí 2010 15:09
Ásgeiri gekk ágætlega í loftskammbyssunni í dag. Hann náði 573 stigum af 600 mögulegum og endaði í 23.sæti sem er auðvitað frábært. Hann vantaði aðeins 8 stig til að komast í úrslit. Skorin má skoða hérna. Nú bíðum bara eftir helginni en þá keppir hann í Fríbyssunni. Fréttastofan mun koma með nánari tímasetningar innan skamms.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir keppir á þriðjudag kl.13:00 !! Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 24 Maí 2010 18:13
Ásgeir Sigurgeirsson keppir í loftskammbyssu á heimsbikarmótinu á morgun, þriðjudag, kl.13:00 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með honum á skorsíðu ISSF. Þar er einnig hægt að fylgjast með öðrum greinum mótsins. Úrslitin eru einnig sýnd beint á ISSF-TV og á eftir kl.19:30 verða úrslitin í loftskammbyssu kvenna sýnd beint hérna. Veljið LIVE TV hægra megin á skjánum.
AddThis Social Bookmark Button
 
Lið okkar sigraði á landsmótinu í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 22 Maí 2010 21:55
Helsut úrslit á landsmóti STÍ, sem haldið var í dag á svæði félagsins að Álfsnesi, urðu sem hér segir:  Í liðakeppninni sigraði A-lið okkar með þá Gunnar Sigurðsson, Þorgeir M. Þorgeirsson og Einar Einarsson innanborðs. Í flokki unglinga sigraði Óskar R. Karlsson úr SR og í kvennaflokki Margrét Elfa Hjálmarsdóttir einnig úr SR.  Þorgeir M.Þorgeirsson úr SR varð í 3.sæti í einstaklingskeppni karla. Í flokkakeppninni sigraði Þorgeir í 1.flokki, og í öldungaflokki sigraði vonarstjarnan okkar, Gunnar Sigurðsson en ljóst er að hann fær meiri keppni á næstu mótum í Öl-flokknum. Sérslega ánægjulegt var að sjá okkar lið sigra í liðakeppninni en á árum áður voru lið okkar fastagestir í gullverðlaunasætum landsmótanna. Úslit mótsins eru komin á úrslitasíðu STÍ hérna og eins er nóg af myndum hérna. Ef einhverja langar í góð eintök af myndunum þá er einfalt að hringja í framkvæmdastjórann og óska eftir eintaki í tölvupósti. 
AddThis Social Bookmark Button
 
Opið mánudaginn, annan í Hvítasunnu Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 22 Maí 2010 19:21
Álfsnesið verður opið á mánudaginn, annan í Hvítasunnu - sjá Opnunartímar Wink
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 32
Hreindýranámskeið
Hreindýranámskeið eru haldin alla miðvikudaga fram í ágúst, sjá undir Námskeið.
Námskeið í haglabyssu
Boðið er uppá námskeið í haglabyssu fyrir byrjendur og lengra komna, sjá undir Námskeið.
Reykjavík - Open
Reykjavík Open í Skeet verður haldið dagana 28. og 29. ágúst á völlum félagsins á Álfsnesi.
Borði
Ladies Grandprix mótið verður haldið á völlum SR 15.–19. september 2010.
Smellið á myndina fyrir frekari upplýsingar.
Borði
Álfsnes - Skotsvæði
Borði
Álfsnes - leiðin á korti frá Mosfellsbæ
Borði
Egilshöll - 50m salur
Borði
Egilshöll - Loftbrautir
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði