Sigurgeir Guðmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍBR látinn. Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 06. janúar 2021 13:49

sigurgeirgumphotoSigurgeir Guðmannsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur lézt á Vífilsstöðum þann 30. desember s.l. 93 ára að aldri. Sigurgeir var framkvæmdstjóri bandalagsins frá 1954 til 1996, eða í 42 ár en vann síðan áfram að ýmsum verkefnum á skrifstofu ÍBR. Jafnframt var hann fyrsti framkvæmdastjóri Laugardalshallar 1965-1969 og framkvæmdastjóri Íslenskra getrauna 1969-1984.

Við söknum mikils meistara sem alltaf var léttur í sinni og botnlaus brunnur allskonar fróðleiks og sögulegra staðreynda.  Fjölskyldu Sigurgeirs eru færðar innilegar samúðarkveðjur.

AddThis Social Bookmark Button