Íslandsmótið í skeet um helgina Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 21. ágúst 2018 09:07

2018skeet islmot ka2018skeet islmot lidkv2018skeet islmot123ka2018skeet islmot123kvÍslandsmót Skotíþróttasambands Íslands í haglabyssugreininni Skeet fór fram á velli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. Í karlaflokki varð Sigurður Unnar Hauksson úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari, annar varð Hákon Þ. Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands og í þriðja sæti Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar. Í liðakeppni karla varð sveit Skotíþróttafélags Suðurlands Íslandsmeistari en hana skipuðu Hákon Þ.Svavarsson, Jakob Þ. Leifsson og Aðalsteinn Svavarsson. Íslandsmeistari í unglingaflokki varð Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar og í öðru sæti varð Ágúst Ingi Davíðsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands. Í öldungaflokki varð Davíð Ingason úr Skotíþróttafélagi Suðurlands Íslandsmeistari. Í kvennaflokki varð Snjólaug María Wium Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss, önnur varð Dagný H. Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur og í þriðja sæti Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Suðurlands. Í liðakeppni kvenna setti lið Skotfélags Reykjavíkur nýtt Íslandsmet en sveitina skipa Dagný H. Hinriksdóttir, Eva Ósk Skaftadóttir og Þórey Inga Helgadóttir.

AddThis Social Bookmark Button