OPNAÐ Á ÁLFSNESI Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 06. september 2024 12:21

alfsnes allir2024 flaggad 7sepOPNUN á ÁLFSNESI !! Við vorum að fá frábærar fréttir frá Umhverfissofnun um að okkur er gert heimilt að hefja starfið á Álfsnesi. Bráðabirgðaheimild er komin sem gildir til 5.jan 2025 meðan unnið er að því að uppfylla kvaðir sem farið er fram á af Heilbrigðiseftirlitinu.

Tilkynningin er svona:

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Skotfélag Reykjavíkur.
Meðfylgjandi er bráðabirgðaheimildin sem öðlast þegar gildi og gildir í 4 mánuði.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Auglýsing um veitingu bráðbirgðaheimildar verður birt á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Það VERÐUR OPNAÐ á morgun kl.10:00 og verður opið til kl. 16:00  !!

AddThis Social Bookmark Button