Á Íslandsmóti STÍ í Grófri skammbyssu sem fram fór í Kópavogi í dag varð Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari, annar varð Eiríkur Ó.Jónsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs og í þriðja sæti hafnaði Grétar M. Axelsson úr Skotfélagi Akureyrar. Í liðakeppninni varð A-sveit Skotfélags Reykjavíkur Íslandsmeistari en liðið skipuðu ásamt Karli, Jón Árni Þórisson og Engilbert Runólfsson. Ljósm:JAK