Úlfar með sitt annað Íslandsmet um helgina Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 08. desember 2024 14:35

14lmot_3p_8des2024_ulfar10lmot_3p_8des2024_lid7lmot_3p_8des2024_1239lmot_3p_8des2024_islmetLandsmót STÍ í 50m þrístöðu riffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Í flokki unglinga sigraði Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur á nýju Íslandsmeti 501 stig, hans annað Íslandsmet þessa helgina !

Í opnum flokki fullorðinna sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 536 stig, Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar varð annar með 523 stig og í þriðja sæti hafnaði Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr Skotíþróttafélagi Snæfellsness með 518 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,522 stig en A-sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar hlaut silfrið með 1,498 stig. Myndir frá keppni dagsins eru á Facebook síðu félagsins. Nánar á úrslitasíðu STÍ.

AddThis Social Bookmark Button