|
Laugardagur, 28. mars 2026 18:17 |
Landsmót Skotíþróttasambands Íslands í 60 skotum liggjandi á 50 m fór fram í dag í aðstöðu Skotfélags Reykjavíkur í Egilshöll. Úlfar Sigurbjarnarson úr SR setti nýtt Íslandsmet í unglingaflokki og var aðeins 0,1 stigi frá því að rjúfa 600 stiga múrinn! Í opnum flokki náðu allir keppendur á verðlaunapalli meistaraflokksskori (>615), þar sem Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs vann sigur með 626,1 stig, Valur Richter hlaut silfur með 519,5 stig og Guðmundur Valdimarsson varð í þriðja sæti með 616,1 stig. Þeir síðarnefndu er báðir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar. Hörð keppni var í liðakeppninni þó að aðeins tvö lið náðu að keppa þar sem ófært var frá Ísafirði. Aðeins munaði 1,3 stigum á liðunum í lok keppninnar þar sem Skotfélag Reykjavíkur hlaut 1800,5 stig en Skotíþróttafélag Kópavogs tók silfrið með 1799,2 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna:
|