Tvö Íslandsmet bætt um helgina Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 28. apríl 2026 14:08

2026_lidsr_3p_islmSunnudaginn 26. apríl fóru fram Íslandsmeistaramót STÍ í 50 m liggjandi riffli og í þrístöðu í aðstöðu Skotíþróttafélags Kópavogs í Digranesi.

Í þrístöðu átti Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavikur frábæran dag og stórbætti Íslandsmet sitt í unglingaflokki um 26 stig og skaut 546 stig. Jafnframt  varð Úlfar Íslandsmeistari í drengjaflokki. Aðalheiður Lára Guðmundsdóttur úr Skotfélagi Snæfellsnes varð Íslandsmeistari í kvennaflokki með 519 stig og í öðru sæti var Jórunn Harðardóttir úr Skotfélag Reykjavíkur með 509 stig. Í karlaflokki varð Leifur Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar Íslandsmeistari með 514 stig. Félagi hans Valur Richter lenti í öðru sæti með 512 stig, og í þriðja sæti varð Sigurbjörn Gunnarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur á sama stigafjölda en með færri innri tíur. Samanlagður stigafjöldi liðs SR með þau Úlfar, Sigurbjörn og Jórunni er einnig Íslandsmet í blönduðu liði í þrístöðu.

Í 50 m liggjandi riffli varð Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs Íslandsmeistari með 626,2 stig, annar var Valur Richter með 616,4 stig, og þriðji var Leifur Bremnes með 609,5 stig en þeir keppa báðir fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar. Íslandsmeistari í kvennaflokki varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 605,3 stig. Í öðru sæti var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttur úr Skotfélagi Snæfellsnes með 578,9 stig og í þriðja sæti var Íris Eva Einarsdóttir úr SR með 577,4 stig. Úlfar Sigurbjarnarson úr SR varð Íslandsmeistari í drengjaflokki með 590,1 stig og Karen Rós Valsdóttir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar varð Íslandsmeistari í stúlknaflokki með 545,1 stig. Í liðakeppninni varð lið Skotíþróttafélags Ísafjarðar stigahæst með 1.828,7 stig, lið Skotíþróttafélags Kópavogs í öðru sæti (1.821,4 stig), og lið Skotfélags Reykjavíkur í því þriðja (1.810,5 stig).

Í báðum keppnum voru einnig krýndir Íslandsmeistarar í flokkum og má nálgast frekari úrslit á síðum STÍ (þrístaða og 50 m liggjandi)

Myndir af verðlaunahöfum eru hérna:

AddThis Social Bookmark Button