Mánudagur, 17. ágúst 2009 07:52 |
Íslandsmótinu í haglabyssu-skeet lauk í gær. Íslandsmeistari karla varð Sigurþór Jóhannesson úr SÍH. Í liðakeppninni varð lið SFS meistari. Nánar um úrslit mótsins og myndir frá því á STÍ-síðunni
|
|
Laugardagur, 15. ágúst 2009 21:52 |
Eftir fyrri daginn á Íslandsmótinu í skeet í Þorlákshöfn er Sigurþór Jóhannesson úr SÍH efstur með 71 stig. Hjá okkar mönnum er staðan þannig að Svafar er með 63 stig í 8.-11 sæti, Örn með 61 stig í 14.-15.sæti, Þorgeir með 55 stig í 20.-21.sæti og Gunnar með 49 stig í 25.-26.sæti. Staðan er komin á STÍ síðuna.
|
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009 10:35 |
Rifflamót Hlað og Norma, sem haldið var á Álfsnesi 26. júli sl. - ÚRSLIT
|
Sunnudagur, 02. ágúst 2009 13:40 |
Ásgeir Sigurgerisson keppti á Sænska Meistaramótinu í Frjálsri Skammbyssu í morgun. Hann hafnaði í 2.sæti á 546 stigum en sigurvegarinn var á 548 stigum. Ásgeir fékkk ekki að taka þátt í finalnum þar sem hann var eingöngu fyrir sænska keppendur. Skorið var annars 90 92 92 88 91 93 Frábær árangur og óskum við honum til hamingju með árangurinn.
|
Mánudagur, 27. júlí 2009 16:30 |
Tore Brovold frá Noregi var að jafna heimsmetið í skeet á Evrópumeistaramótinu í Króatíu. Tore skaut allar 150 dúfurnar í keppninni ! 125+25
|
Sunnudagur, 26. júlí 2009 19:08 |
Skammbyssuskyttan okkar hann Ásgeir Sigurgeirsson var að setja nýtt ÍSLANDSMET í Frjálsri Skammbyssu á móti í Uppsölum í Svíþjóð í dag, með því að skjóta 555 stig af 600 mögulegum. Gamla metið var 554 stig sett af Ólafi Jakobssyni einnig í Uppsölum árið 1993. Þess má geta að Ólympíulágmarkið í þessari grein er 540 stig. Ásgeir keppti einnig í morgun og vann þá keppni líka með 545 stig.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 271 272 273 274 275 276 277 278 279 280 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 271 af 293 |