Föstudagur, 21. maí 2010 09:55 |
Ásgeir Sigurgeirsson er að fara til Bandaríkjanna í fyrramálið, þar sem hann mun taka þátt í bæði Loftskammbyssu sem og Frjálsri skammbyssu (Free pistol), á heimsbikarmóti ISSF í Fort Benning. Hægt verður að fylgjast með framgangi mála á heimasíðu mótsins hérna. Ásgeir er þarna að keppa við þá bestu í þessum greinum og verður spennandi að sjá hvernig honum gengur í keppni við þá.
|
|
Fimmtudagur, 20. maí 2010 17:19 |
Greiðsluseðlar vegna árgjalds 2010 verða sendir út næstu daga. Greiðslukvittun gildir sem félagsskírteini þar til þau verða tilbúin. Sú nýlunda verður tekin upp á svæðum félagsins að starfsmönnum verður óheimilt að selja þjónustu þess nema gegn framvísun gilds félagsskírteinis eða greiðslukvittunar. Félagsmenn SKOTREYN-ar sem nýta sér riffilaðstöðuna samkvæmt samning, þurfa að framvísa sínu félagsskírteini merktu SKOTREYN. Eindagi árgjalds er 10.júní.
|
Fimmtudagur, 20. maí 2010 10:27 |
Á Opna Akranesmótinu í loftbyssugreinunum sigruðu okkar menn. Sigfús Tryggvi Blumenstein sigraði í loftriffli með 542 stig og Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu með 582 stig. Nánar um úrslit hérna og eins fréttir af mótinu hérna.
|
Laugardagur, 08. maí 2010 18:19 |
Aðalfundurinn var haldin 6. maí s.l. og vel var mætt á fundinn. M.a. voru lagabreytingar samþykktar á fundinum um m.a. inntöku nýrra skotgreina í félaginu. Það kom fram í skýrslu stjórnar og gjaldkera að í fyrsta skiptið í sögu félagsins hefur félagafjöldi farið yfir eittþúsund manns. Nánar í fundargerð aðalfundar
|
Fimmtudagur, 06. maí 2010 07:30 |
Minnum félagsmenn á aðalfund félagsins sem haldinn verður í kvöld í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hann hefst kl. 19 og verður í aðalhúsi ÍSÍ á 3.hæðinni í sal E.
|
Miðvikudagur, 05. maí 2010 10:41 |
Á minningarmótinu um Hans Christensen sem haldið var í Egilshöllinni í gær sigraði Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu karla með 579 stig. Í loftriffli sigraði Guðmundur Helgi Christensen með 557 stig. Alls mættu 15 keppendur til leiks.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 251 252 253 254 255 256 257 258 259 260 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 251 af 286 |