|
Skotsvæði félagsins á Álfsnesi og Skotsalurinn í Egilshöll eru opin fyrir alla Skotsvæði félagsins eru opnin öllum þeim sem áhuga hafa á að nýta sér aðstöðuna. Þeir sem ekki eru í félaginu þurfa einungis að greiða æfingagjöld í samræmi við gjaldskrá félagsins.
Opnunartímar á Álfsnesi: Ath - óvæntar lokanir / breytingar eru birtar á forsíðu ! Ef veðurútlit er slæmt ákveður umsjónarmaður hvenær svæðinu er lokað. Vinsamlega hringið í síma umsjónarmanns á opnunartíma um nánari upplýsingar. Athugið einnig að fylgjast með séræfingum og námskeiðum sem geta truflað auglýsta opnunartíma !! 30.ágúst | 31.ágúst | 1.sept | 2.sept | | 4.sept | | Mánud. | Þriðjud. | Miðvikud. | Fimmtud. | Föstud. | Laugard. | Sunnud. | Opið 17-21 | Opið 16-21 | Opið 17-21 | Opið 17-21 | Lokað | Opið 10-18 | Lokað |
Þeir sem ætla að nýta sér aðstöðuna eru beðnir að kynna sér Öryggisreglur sem gilda á skotsvæðum félagsins og Umgengnisreglur sem gilda á riffilvellinum. Æfingagjöld er að finna í gjaldskrá. Nánari upplýsingar gefur umsjónarmaður svæðisins í síma 690-5751 á opnunartíma ! ( Ath - síma er ekki svarað utan opnunartíma á Álfsnesi ) Opnunartíminn á Álfsnesi ræðst af starfsleyfi Reykjavíkurborgar, en æfingar utan auglýsts opnunartíma eru ekki tilkynntar sérstaklega. Þar getur verið um að ræða æfingar keppnisflokka, móttaka gestahópa og kennsla í skotfimi. Allar þær æfingar eru innan leyfilegs æfingatíma samkvæmt útgefnu starfsleyfi félagsins.
Opnunartímar í Egilshöll. Lokað er í sumar en opið á fimmtudögum - sjá hér að neðan: Opið verður á fimmtudögum í júní, ágúst og sept...... | Almenn | Almenn | Skammb.æfing | Almenn | | Almenn | | Mánud. | Þriðjud. | Miðvikud. | Fimmtud. | Föstud. | Laugard. | Sunnud. | Lokað | Lokað | Lokað | 19-21 | Lokað | Lokað | Lokað |
Á miðvikudögum er skammbyssuæfing í púðursal og því lokað fyrir riffla. Opið er aftur á móti í loftbyssusal. Lokað er fyrir æfingar á laugardögum þegar mót standa yfir, sjá mótaskrá ! Þeir sem ætla að nýta sér aðstöðuna í Egilshöll eru beðnir að kynna sér Öryggisreglur sem gilda á skotsvæðum félagsins.
Loftrifflar og loftskammbyssur - nánari upplýsingar. Byrjendur: Sérstakir byrjendatímar eru á fimmtudögum kl: 19:00 - 20:00 Fyrstu æfingar byrjenda eru ávallt með loftriffli Leyfileg caliber og kúlur: Riffla-caliber sem er leyfilegt til æfinga og keppni, er eingöngu Rimfire cal.22LR ( HiVel bönnuð ) Skammbyssu caliber upp í 9mm / 38 special utan hefðbundinna æfinga með leyfi skotstjóra. Leyfilegt caliber í loftsal : cal.177 (4,5mm) blý-bikar. Önnur caliber eru ekki leyfð en þau sem getið er um hér að ofan ! Símanúmer í æfingasal er 594-9625. Allar nánari upplýsingar hjá skotstjórum á staðnum.
Verið velkomin í Egilshöll ! Stjórn Skotfélags Reykjavíkur
|