Gjaldskrá Skotfélags Reykjavíkur 2025-2026 Skoða sem PDF skjal

Engin aldurstakmörk eru á inngöngu í félagið, en viðkomandi þarf að vera orðinn 15 ára til að geta hafið æfingar hjá félaginu með skriflegu samþykki foreldris / forsjáraðila og undir eftirliti þjálfara / umsjónarmanns. Foreldraleyfi fæst hér á pdf formi.

  • Árgjald félagsins er kr. 21,000.
  • Árgjald Unglinga* (15 - 20 ára) er kr. 10,000 -
  • Hjón og sambýlisfólk, sem bæði eru í félaginu, greiða hálft árgjald hvort.
  • Félagsmenn 70 ára á árinu og eldri fá árgjald fellt niður !!
  • * Unglingur telst sá eða sú sem er yngri en 21 árs.


Æfingagjöld fyrir árið 2025-26 á Álfsnesi og í Egilshöll:

  • -Árs æfingagjald í Egilshöll fyrir félagsmenn kr: 15,000- 70 ára og eldri frítt (félagsmenn með greitt ársæfingagjald á riffilvöll Álfsnesi fá 50% afslátt )

  • -Árs æfingagjald á riffilvöll / skotskýli á Álfsnesi fyrir félagsmenn kr: 15,000- 70 ára og eldri frítt (félagsmenn með greitt ársæfingagjald í Egilshöll fá 50% afslátt

  • -Stök riffilæfing, Egilshöll og Álfsnesi fyrir félagsmenn kr. 1,500- 70 ára og eldri frítt

  • -Stök riffilæfing á Álfsnesi fyrir utanfélagsmenn 3,600 en kr. 3,100 í Egilshöll

  • -Pakki 5 skipti á riffilvöll fyrir félagsmenn SR með greitt árgjald... kr. 5,000

  • -Haglahringur, stakur fyrir félagsmenn kr. 1,200----Sama gjald fyrir æfingu skráðra keppenda fyrir mót.

  • -Haglahringur, 10 miða búnt fyrir félagsmenn kr. 8,000 - (kr. 800 pr.hringur) Gildir aðeins ef árgjald er greitt !

  • -Haglahringur, stakur fyrir utanfélagsmenn kr: 1,600-

  • SKEET skotvesti merkt félaginu kr. 42,000

Félags- og æfingagjöldum er hægt að skipta á jafnar greiðslur á greiðslukort !
Aðeins félagsmenn með greitt árgjald getur keypt ársæfingakort í Egilshöll, í skotskýli á Álfsnesi, miðabúnt á Álfsnes og Egilshöll eða miðabúnt á haglavelli ! Athugið að miðabúnt eru ekki gild nema framvísað sé gildu félagsskírteini eða kvittun fyrir greiðslu árgjaldsins.
Félagsmenn með greitt árgjald ganga fyrir í æfingaaðstöðu félagsins, í Egilshöll, í skotskýlið á Álfsnesi og á haglavelli, ef aðstaðan er fullnýtt á æfingatíma !
Félagsmönnum er skylt að framvísa félagsskírteini eða greiðslukvittun fyrir greiddu árgjaldi á æfingasvæðum félagsins !
Félagsmenn, félagsskírteinin eru afhent á opnunartíma á Álfsnesi !!
Skotvellir félagsins á Álfsnesi og í Egilshöll eru opnir öllum þeim sem áhuga hafa á að nýta sér aðstöðuna. Þeir sem ekki eru í félaginu þurfa einungis að greiða æfingagjöld samkvæmt gjaldskrá félagsins.

ATHUGIÐ að ekki er leyfilegt að nota haglaskot með blýhöglum !!


Verið velkomin á æfingasvæði félagsins !

Félagsmenn eftirtalinna félaga njóta sömu æfingagjalda og almennir félagsmenn okkar, ekki búnt og magnmiðar: Skotfélagið Markviss, Skotíþróttafélag Suðurlands, Skotfélag Akraness, Skotfélagið Skyttur og Skotfélag Akureyrar.

Gildir frá og með 1.maí 2025

AddThis Social Bookmark Button
 
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing