Reykjavíkurleikarnir á laugardaginn
Skotfimi verður nú í fyrsta skipti með á hinum árlegu Reykjavíkurleikum. Keppt verður í Loftskammbyssu og Loftriffli karla og kvenna. Keppnin fer fram í Egilshöllinni laugardaginn 24.janúar n.k. og hefst þá kl.09:00. Keppnisæfing skráðra keppenda er á föstudaginn 23.janúar kl. 14:00 til 18:00.
Lokaskráning fer nú fram og lýkur að kvöldi þriðjudagsins 20.janúar með tölvupósti á
sr@sr.is
Reiknað er með að allir bestu skotmenn landsins mæti til leiks.
Upplýsingar eru á heimsíðu leikanna hérna.

