Skotfélag Reykjavíkur vill að allir sem stunda íþróttir hjá félaginu finni til öryggis og virðingar. Hér eru hlekkir á leiðbeiningar, efni og aðstoð vegna eineltis, áreitni og ofbeldis í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Ef þú verður fyrir eða verður vitni að einelti, áreitni eða ofbeldi í íþróttastarfi: leitaðu til Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Ráðgjöfin er óháð og gjaldfrjáls. samskiptaradgjafi.is
Leiðbeiningar og efni
Eftirfarandi efni er gefið út af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og UMFÍ og starfar félagið eftir því.
Leiðbeiningar og verkferlar í ofbeldismálum
Leiðbeiningar Íþróttabandalags Reykjavíkur um hvernig bregðast skal við ofbeldi eða áreitni – meðal annars þegar barn yngra en 18 ára segir frá, hvaða tilkynningarskyldur gilda og hvernig málið er unnið áfram.
Kynferðislegt ofbeldi og kynferðisleg áreitni í íþróttum
Bæklingur Íþróttabandalags Reykjavíkur um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni í íþróttum: hvað telst áreitni, hvernig bregðast á við og hvert skal leita.
Siðareglur UMFÍ
Siðareglur UMFÍ um hegðun og framkomu í íþrótta- og æskulýðsstarfi, sem félagið starfar eftir.
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs
Samskiptaráðgjafi veitir óháða og gjaldfrjálsa ráðgjöf og tekur við tilkynningum um einelti, áreitni og ofbeldi í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Öll sem sækja æfingar eða félagsstarf á Íslandi geta leitað til hans.
Heimasíða: samskiptaradgjafi.is
Netfang: samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is
Sími: 581-1009, 839-9100 og 783-9100
Þverholti 14, 105 Reykjavík
Hafa samband við félagið
Þú getur líka haft samband við stjórn Skotfélags Reykjavíkur á sr@sr.is.
