Gjaldskrá

Engin aldurstakmörk eru á inngöngu í félagið. Viðkomandi þarf þó að vera orðinn 15 ára til að geta hafið æfingar hjá félaginu, með skriflegu samþykki foreldris eða forsjáraðila og undir eftirliti þjálfara eða umsjónarmanns. Foreldraleyfi fæst hér á PDF-formi.

Félagsgjöld

TegundGjald
Árgjald félagsins21.000 kr.
Árgjald unglinga* (15–20 ára)10.000 kr.
Hjón eða sambýlisfólk (bæði í félaginu)Hálft árgjald hvort
Félagsmenn 70 ára og eldriFrítt

* Unglingur telst sá eða sú sem er yngri en 21 árs.

Æfingagjöld

Gjöldin gilda á Álfsnesi og í Egilshöll.

TegundFélagsmennUtanfélagsmenn
Ársæfingagjald – Egilshöll †§15.000 kr.—
Ársæfingagjald – Álfsnes (riffilvöllur / skotskýli) †§15.000 kr.—
Stök riffilæfing – Álfsnes1.500 kr.3.600 kr.
Stök riffil-/loftæfing – Egilshöll1.500 kr.3.100 kr.
Pakki – 5 skipti á riffilvöll §5.000 kr.—
Stakur haglahringur ‡1.200 kr.1.600 kr.
Pakki – 10 Haglahringir §8.000 kr.—
SKEET skotvesti merkt félaginu42.000 kr.—

† 70 ára og eldri er frítt. Félagsmenn sem hafa greitt ársæfingagjald á öðrum staðnum fá 50% afslátt.
‡ Sama gjald gildir fyrir æfingu skráðra keppenda fyrir mót.
§ Aðeins fyrir félagsmenn með greitt árgjald.

Greiðslur og skilmálar

  • Aðeins félagsmenn með greitt árgjald geta keypt ársæfingakort eða pakka. Pakkar eru ekki gild nema framvísað sé gildu félagsskírteini eða kvittun fyrir greiðslu árgjaldsins.
  • Félagsmenn með greitt árgjald ganga fyrir í æfingaaðstöðu félagsins – ef aðstaðan er fullnýtt á æfingatíma.
  • Félagsmönnum er skylt að framvísa félagsskírteini eða greiðslukvittun fyrir greitt árgjald á æfingasvæðum félagsins.
  • Skotvellir félagsins á Álfsnesi og í Egilshöll eru opnir öllum sem áhuga hafa. Þeir sem ekki eru í félaginu þurfa einungis að greiða æfingagjöld samkvæmt gjaldskrá félagsins.

ATHUGIÐ: Ekki er leyfilegt að nota haglaskot með blýhöglum!

Félagsmenn eftirtalinna félaga njóta sömu æfingagjalda og almennir félagsmenn SR (þó ekki pakkar):

  • Skotfélagið Markviss
  • Skotíþróttafélag Suðurlands
  • Skotfélag Akraness
  • Skotfélagið Skyttur
  • Skotfélag Akureyrar.

Gildir frá og með 1. maí 2025.