Egilshöll

Egilshöll við Fossaleyni 1 í Grafarvogi er ein af æfingaaðstöðum Skotfélags Reykjavíkur. Aðstaða SR er í kjallara Egilshallar og er gengið niður stigagang á hægri hönd eftir að komið eru inn úr andyrinu. Þar má skjóta allt árið og mega allir koma – félagsmenn jafnt sem gestir.

Aðstaða

  • 10 m loftsalur 16 brautir fyrir riffil og skammbyssur
  • 50 m púðursalur 6 brautir þar sem hægt er að skjóta af 22LR rifflum og skammbyssum

Opnunartími

Yfirlit yfir fasta opnunartíma Egilshallar (frá 21. sept. 2026):

DagurTímiLoftsalurPúðursalur
Mánudagur19:00–21:00Almenn æfingAlmenn æfing
Þriðjudagur19:00–21:00Almenn æfingAlmenn æfing
Miðvikudagur19:00–21:00Almenn æfingSkammbyssa
Fimmtudagur19:00–21:00Almenn æfingAlmenn æfing
FöstudagurLokað—
Laugardagur14:00–16:00—BR50 / Bench rest
SunnudagurLokað—

Athugið

  • Á miðvikudögum er skammbyssuæfing í púðursal og því lokað fyrir riffla þar.
  • Lokað er fyrir æfingar þegar mót standa yfir.
  • Egilshöllin er lokuð yfir sumarið (síðasti opnunardagur er 5. maí 2027, opnaði að nýju 20. sept. 2027) og um páskana (24. mars – 29. mars 2027).
  • Yfir jól og áramót er lokað frá 17. des. 2026 og opnað að nýju mánudaginn 4. janúar 2027.
  • Óvæntar lokanir eða breytingar eru birtar á forsíðu. Sérstakar æfingar keppnismanna eru auglýstar sérstaklega.

Leyfilegar caliber

  • Í loftsal: cal. 177 (4,5 mm) blý, hámarkskraftur 7,5 J. Kraftmeiri loftbyssur fara í púðursal.
  • Í púðursal: rifflar eingöngu .22 LR (HighVelocity bönnuð) og skammbyssur upp í 9 mm / .38 Special.

Allir velkomnir

Í Egilshöll mega allir koma og skjóta, hvort sem þeir eru félagsmenn eða ekki. Öllum er skylt að fara eftir öryggis- og umgengisreglum félagsins. Þeir sem ekki eru í félaginu greiða æfingagjald samkvæmt gjaldskrá.

Byrjendur eru sérstaklega velkomnir – byrjendatímar eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:00–20:00. Fyrsta æfing er ókeypis og fyrstu æfingar eru ávallt með loftriffli. Hafið samband við skotstjóra á staðnum.