Hjá Skotfélagi Reykjavíkur er hægt að taka verklegt skotpróf hreindýraveiðimanna. Prófið gildir í 12 mánuði og má taka hvenær sem er á ársins.
Skráning
Skráðu þig til próftöku hjá prófdómara okkar í síma 866-8900 eða með tölvupósti á sr@sr.is. Skráning er opin frá 1. apríl 2025.
Gjald og greiðsla
Samkvæmt gjaldskrá Náttúruverndarstofnunar er gjaldið 7.000 kr. fyrir hvert próf og verður að greiðast fyrir próftöku.
Greiðsla þarf að hafa borist fyrir próftöku inn á reikning Skotfélags Reykjavíkur og kvittun send í tölvupósti á sr@sr.is:
Kennitala: 600269-2919
Reikningsnúmer: 0516-26-000899
Best er að skrá sig fyrirfram og greiðslan þarf að berast áður en prófið er tekið.
Gott að vita
- Mættu með löglegar veiðikúlur skv. reglugerð – hvorki heilar kúlur (FMJ) né keppniskúlur (match).
- Hægt er að taka prófið hvenær sem er á ársins; slepptu stressinu í kringum vorpróftökuna og taktu það í vetur.
- Prófið gildir í 12 mánuði.
- Nánari upplýsingar um verklegt skotpróf eru á vef Umhverfisstofnunar.
Athugið: Heilar kúlur (FMJ) og keppniskúlur (match) eru ekki leyfðar í veiðar og þar með ekki til próftöku. Einnig er rétt að taka fram að engin önnur gjöld eru tekin fyrir próftökuna.
