Ásgeir í 28.sæti á EM í Slóveníu

Ásgeir Sigurgeirsson var að ljúka keppni í frjálsri skammbyssu á Evrópumeistaramótinu í Slóveníu. Hann átti frekar slakan dag en endaði samt í 28.sæti af 60 keppendum. Skorið var 541 stig (93 93 86 86 92 91) sem er töluvert frá hans besta.