Biðröð í skotskýlið í dag !

Enn og aftur var biðröð í skotskýlið á Álfsnesi.

Veðrið var gott framan af degi til skotfimi, enda var ágæt aðsókn á svæðið í dag, bæði á haglavellina og skotskýlið. Stjórn félagsins hefur verið að athuga með rýmri opnunartíma um helgar vegna þrýstings frá félagsmönnum um að hafa opið báða dagana um helgar. Stjórnin stefnir á að að sækja um breytingu á starfsleyfi félagsins um þetta atriði, enda er það sjónarmið þeirra sem stunda frístunda-sport að aðstaðan sé opin á almennum frítímum.