Ísfirðingar að opna nýja aðstöðu

Frétt af www.bb.is:

Á sunnudaginn 31.janúar verður skotíþróttahúsið á Torfnesi á Ísafirði opnað og verður opið hús af því tilefni. Húsið er í áhorfendastúkunni við grasvöllinn á Torfnesi. Tilkoma skotíþróttahússins gjörbyltir allri aðstöðu til skotíþróttaiðkunar og bogfimi í Ísafjarðarbæ. Stjórn Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar vonast til að sem flestir sjái sér fært að koma og samfagna þessum tímamótum í starfsemi félagsins og kynna sér aðstöðuna. Gestum gefst kostur á að reyna sig við bogfimi, sér að kostnaðarlausu.
Allir eru velkomnir og húsið verður opið frá kl. 13 til kl. 15.
smari@bb.is