Íslandsmet hjá Viktoríu í dag

Hið árlega Christensen-mót fór fram í Egilshöllinni í dag. Keppt er í opnum flokkum óháð kyni og aldri. Í loftriffli sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 591,2 stig, í öðru sæti varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 579,7 stig og í þriðja sæti hafnaði Viktoría Bjarnarson úr SR með 575,5 stig sem jafnframt er nýtt Íslandsmet Unglinga. Í loftskammbyssu sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 568 stif, í öðru sæti Jórunn Harðardóttir úr SR með 550 stig og í þriðja sæti Ingvi Eðvarðsson úr SK með 526 stig.

2018 ar60christmot gkg_1076

2018ap60christmot

2018ar60christmot

2018christmotallir