Jón, Ingibjörg og Felix sigruðu um helgina

Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Compak Sporting fór fram á skotvöllum Skotfélags Akureyrar um helgina. Til leiks mættu 38 skyttur úr 8 félögum allstaðar að af landinu.Í karlaflokki sigraði Jón Valgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 181 stig, í öðru sæti varð Ellert Aðalsteinsson úr Skotfélagi Akraness með 179 stig og þriðji Þórir Guðnason úr Skotíþróttafélagi Hanfarfjarðar með 175 stig. Í kvennaflokki sigraði Ingibjörg A. Bergþórsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 159 stig, Dagný H. Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur varð önnur með 153 stig og í þriðja sæti Snjólaug M. Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss á Blönduósi, með 149 stig. Í unglingaflokki vann Felix Jónsson úr Skotfélagi Reykjavíkur gullið með 159 stig og silfrið hlaut Viðar Hilmarsson úr Skotfélagi Akureyrar með 126 stig.

2020 comspo 2106 jr123

2020 comspo 2106 ka123

2020 comspo 2106 kv123

2020 lmot comp 20 21 juni sa