Breyting á aðalskipulagi komin í auglýsingu
Drög að aðalskipulagbreytingu er varðar skotíþróttasvæði á Álfsnesi, sbr. áður kynnt verkefnislýsing, eru nú til kynningar og umsagnar. Í drögunum er sett fram tillaga að skilgreiningu íþróttasvæðis á Álfsnesi, þar sem núverandi skotæfingasvæði eru til staðar í dag. Gert er ráð fyrir að um tímabundna landnotkunarheimild sé að ræða og verði heimilt að endurnýja starfsleyfi til félaga á svæðinu til ársloka 2028. Stefna um landnotkun á svæðinu verður tekin til endurskoðunar innan fjögurra ára og þá á grundvelli niðurstaðna um staðarval skotæfingasvæða til lengri framtíðar litið. Með vísan til 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga eru umrædd gögn lögð fram til kynningar og umsagnar.
Drögin verða til kynningar í skipulagsgáttinni, samráðsvettvangi um skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum, sjá www.skipulagsgatt.is Sjá einnig meðfylgjandi skjal.
Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á þeim vettvangi fyrir 2. nóvember nk.Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar (skipulag@reykjavik.is
).
Umsókn um endurnýjað starfsleyfi getum við ekki sent inn fyrr en ofangreind breyting tekur gildi. Þetta gæti þýtt opnun svæðisins í febrúar-mars ef allt gengur eftir.

