Norma mótið í sumar !
Verslunin Hlað hefur ákveðið í samvinnu við SR og sænska skotframleiðandann Norma, að endurtaka mótið sem haldið var í fyrra. Við höfum þegar ráðstafað riffilvellinum undir mótið sem haldið verður laugardaginn 17.júlí og hefst það kl. 13:00. Opið verður fyrir almennar æfingar kl. 10 – 12 þennan dag. Á mótinu verður einungis hægt að keppa með Norma verksmiðjuskotum og aðeins í caliberunum 308 og 6,5×55.
