Hreindýranámskeið SR komin á dagskrá
Fyrsta námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 23.júní kl. 18 til 21. Síðan alla miðvikudaga sem hér segir: 30.júní, 7.-14.-21. og 28.júlí og svo 4.ágúst. Þátttökugjald er kr. 4,000. Farið verður í almenna meðferð skotvopna, stillingar kíkja sem og meðhöndlun dýranna. Nýr bæklingur um hreindýraveiðar sem félagið hefur tekið saman fylgir með. Námskeiðinu lýkur með skotprófi þar sem skotið er 5 skotum í 10 cm hring skv. nánari útfærslu kennara. Leiðbeinendur verða Jóhann Vilhjálmsson, byssusmiður, og Vignir J. Jónasson, hreindýraleiðsögumaður.
Skráning á námskeiðin fer fram á tölvupóstfang :
sr@sr.is?subject=Hreind%C3%BDran%C3%A1mskei%C3%B0
eða hjá umsjónarmönnum á Álfsnesi.
