Áramót SR 2010 – Bench-Rest 100m

Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur árlegt Áramót SR í Bench-Rest föstudaginn 31. desember 2010. Mæting er kl. 10:00 en fyrsta hrinan verður skotin kl:11:00

Skotið verður svokallað „Varmint for score“ á 100 metrum samkvæmt amerískri fyrirmynd.Í stórum dráttum gengur það út á að hitta miðpunkt skotskífu sem er 1/4 tomma og stig gefin eftir því. Keppnin samanstendur af því að skotnar verða 5 skífur með 5 punktum hver eða samtals 25 skot sem ákvarða árangur. Á hverri skífu er punktur sem skjóta má að vild, svokallaður sighter. Á undan fyrstu keppnisskífunni er skotið á eina skífu svokallað „warm- up“ til þess að menn geti stillt sig inn og áttað sig á vindi eða öðrum skilyrðum. Fyrir warm- up hrinuna hafa menn 10 mínútur en 7 mínútur fyrir hinar. Allir rifflar eru gjaldgengir og allir sjónaukar leyfilegir. Skotið er af resti og sandpoka eða tvífæti ef menn vilja. Mussle break eru ekki heimil.Þátttakendum verður skipt í þrjá flokka eftir gerð riffla.

  1. Óbreyttir veiðirifflar
  2. Breyttir veiðirifflar
  3. Bench-Rest rifflar

Mótstjóri ákvarðar flokkun keppenda eftir gerð riffla.

Skráning í mótið er á staðnum.

Einhverjar veitingar verða á boðstólum eftir að móti lýkur. Allir skotmenn eru velkomnir. Mótagjald kr. 1.000-( sama verð fyrir utanfélagsmenn jafnt og félagsmenn )Skotfélags Reykjavíkur. Þess má einnig geta að Hlað og Ísnes styrkja mótahaldið.