Íslandsmeistaramót í Benchrest – fyrri dagur !
Eftir fyrri dag er staðan þessi á Íslandsmeistaramótinu í Benchrest HV 100+200m, sem fram fer á Álfsnesi. Valdimar Long er í forystu á 380 – Kjartan Friðriksson er í öðru sæti með 391 – Hjalti Stefánsson er í þriðja sæti með 430,7 – Arnfinnur Jónsson er í fjórða sæti með 445,3 – Bergur Arthúrsson er í fimmta sæti með 473,4 – og Hjörleifur Hilmarsson er í sjötta sæti með 474,1. Á morgun er seinni dagur mótsins og þá verður skotið á 200 metrum. Mótið hefst kl 12:00.
