Fjöldi keppenda á súperfínal í gærkvöldi

Í gærkvöldi héldum við súperfínal, eða bráðabanaúrslit í loftskammbyssu og loftriffli í Egilshöllinni. Alls mættu 18 keppendur í mótið sem stóð yfir frá 19-21:30. Úrslitin urðu nokkuð eftir bókinni en Ásgeir Sigurgeirsson sigraði, Thomas Viderö varð annar og Jórunn Harðardóttir þriðja.