Nýjar Öryggisreglur í Skotskýlinu á Álfsnesi !
Þann 16. febrúar sl. samþykkti stjórn félagsins nýjar Öryggisreglur fyrir Skotskýlið. Reglurnar gilda einungis fyrir Skotskýlið en fljótlega verða almennar öryggis-og umgengisreglur gefnar út. Nýju reglurnar er að finna undir „Félagið“. Starfsmenn félagsins aðstoða og útskýra reglurnar á svæðinu fyrir þá sem þess óska. Öryggismerki í riffla og skammbyssur fást hjá starfsmönnum endurgjaldslaust.
