Álfsnes

Álfsnes er útiæfingasvæði Skotfélags Reykjavíkur. Þar eru riffilbrautir með yfirbyggðu skotskýli og haglavellir fyrir skeet og compak sporting, auk þess sem svæðið er notað fyrir mót, námskeið og æfingar afrekshópa. Allir eru velkomnir – félagsmenn jafnt sem gestir.

Loftmynd af skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi.
Loftmynd af skotsvæði félagsins á Álfsnesi.

Aðstaða

  • Skotskýli riffilbrautir með skotbörðum og merktum brautum, hægt er að skjóta á 25 til 300 metra færi
  • Haglavellir leirdúfuvellir þar sem skotið er skeet og compak sporting.

Opnunartími

Eins og er er svæðið lokað tímabundið.

Athugið

  • Auglýstir opnunartímar geta breyst og óvæntar lokanir eru birtar á forsíðu.
  • Séræfingar, mót og námskeið geta truflað auglýstan opnunartíma. Æfingar afrekshópa, móttaka gestahópa og kennsla geta farið fram utan auglýsts opnunartíma, innan leyfilegs æfingatíma.
  • Opnunartímar eru háðir gildandi starfsleyfi og verða uppfærðir hér ef þeir breytast.

Reglur á svæðinu

Á Álfsnesi gilda öryggis- og umgengisreglur félagsins og er farið eftir þeim fyrirmælum sem skotstjóri eða umsjónarmaður gefur hverju sinni.

Allir velkomnir

Á Álfsnesi mega allir koma og skjóta, hvort sem þeir eru félagsmenn eða ekki. Öllum er skylt að fara eftir öryggis- og umgengisreglum félagsins. Þeir sem ekki eru í félaginu greiða æfingagjald samkvæmt gjaldskrá.

Staðsetning

Skotsvæðið er í Álfsnesi í Reykjavík. Skoða staðsetningu á Google Maps.