Jórunn og Guðmundur Helgi Íslandsmeistarar 2013

Tveir Íslandsmeistaratitlar hjá félagsmönnum í dag ! Á Íslandsmótinu í 60sk liggjandi riffli (enskum riffli) sigruðu hjónin Guðmundur Helgi Christensen og Jórunn Harðardóttir. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með titlana. Skotfélag Kópavogs hélt mótið í aðstöðu sinni í Digranesi og tengdu þeir tölvubúnaðinn inná á internetið. Þannig mátti fylgjast með skorinu í beinni útsendingu. Flott framtak og vel heppnað.