Snjólaug Íslandsmeistari kvenna í dag

Snjólaug Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss frá Blönduósi varð í dag Íslandsmeistari kvenna í skeet-haglabyssu. Í úrslitunum keppti hún við okkar konu Dagnýju H. Hinriksdóttur en einungis munaði einu stigi á þeim í lokin. Árný G. Jónsdóttir varð í 5.-6.sæti. Snjólaug setti einnig nýtt Íslandsmet í undankeppninni, 42 stig. Karlarnir skutu 3 hringi í dag og er Gunnar Gunnarsson efstur eftir fyrri daginn með 66 stig. Okkar menn, Ellert Aðalsteinsson og Örn Valdimarsson koma næstir með 65 stig. Keppnin heldur svo áfram í fyrramálið og hefst hún kl.10:00. /gkg

2013 islm skeet brbani dagn anny gkg_6486

2013 islm skeet dagny gkg_6479

2013 islm skeet final gkg_6471

2013 islm skeet sih kvenna gkg_6501

2013 islm skeet snjolaug gkg_6496

2013 islm skeet urslit gkg_6503