Fyrsta konan tekur þátt i íslandsmóti í Benchrest !
Íslandsmeistaramótið í Benchrest fór fram um sl. helgi. Alls tóku átta keppendur þátt í mótinu við sæmilegar aðstæður, en þó var alls ekki auðvelt að lesa í ytri aðstæður og alls ekki auðvelt að skjóta. Það sem er sérstakt við þetta mót er fyrst og fremst þátttaka Sofíu Bergsdóttur. Fyrsta konan sem tekur þátt í íslandsmeistaramóti í Benchrest,…
….í karlasportinu sjálfu. Soffía keppti fyrir hönd Skotfélags Reykjavíkur. Nokkrar konur eru að keppa í öðrum greinum Stí, s.s. loftgreinum, haglagreinum og .22 riffilgreinum og skammbyssugreinum).

