Þjálfaranámskeið fyrir haglabyssuþjálfara

Þjálfaranámskeið STÍ og ISSF fyrir verðandi haglabyssuþjálfara, verður haldið dagana 13.-16.febrúar kl. 09:00 – 17:00 alla dagana. Kennari er yfirmaður þjálfunarmála hjá ISSF, Kevin Kilty frá Írlandi og námskeiðið fer því fram á ensku. Þátttökugjald er kr. 30,000 en innifalin eru námsgögn, hádegsiverður og kaffiveitingar alla dagana. Hægt er að skrá sig beint hjá STÍ,
sti@sti.is
. Námskeiðið fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og lýkur með skriflegu prófi sem veitir D-réttindi sem grunnþjálfari í haglabyssu. Dagskrána má sjá hérna.