Samstarfssamningar gerðir við nokkur félög
Undanfarið hafa verið gerðir samstarfssamningar við nokkur skotíþróttafélög. Um er að ræða gagnkvæman rétt félagsmanna á æfingaaðstöðum þeirra. Nú þegar hafa samningar við Skotfélag Akraness, Skotfélagið Markviss og Skotíþróttafélag Suðurlands verið undirritaðir. Fleiri samningar bíða undirritunar.



