Framkvæmdum við veginn á Álfsnesi að ljúka

Framkvæmdum við veginn inná skotsvæði okkar á Álfsnesi er nú að ljúka. Komið er slitlag á allan veginn og hluta bílastæðanna. Gerður var afar hagstæður samningur við verktakann sem var að fræsa úr Hvalfjarðargöngunum. Það efni var keyrt í veginn og veghefill og valtari voru við vinnu alla helgina við að jafna efninu út og þjappa. Nú er svo komið að vegurinn er orðinn fær venjulegum fólksbílum. Við þurfum samt að aka varlega og þjappa veginn með hægum akstri næstu vikurnar. Mælumst við til að menn aki ekki hraðar en 15 km/klst.

2014 alfsnes dsc_0122

2014 alfsnes dsc_0124

2014 alfsnes g14_3180

2014 alfsnes g14_3181

2014 alfsnes dsc_0123