RIG leikarnir framundan

Nú líður að Reykjavíkurleikunum RIG 2016 en þeir eru nú haldnir í níunda skipti. Skotfimi kom inn sem keppnisgrein í fyrsta skipti í fyrra. Nú liggur fyrir að keppt verður í loftskammbyssu og loftriffli laugardaginn 23.janúar 2016. Skráning keppenda stendur enn yfir og geta keppendur skráð sig beint til Skotfélags Reykjavíkur með tölvupósti á :
sr@sr.is
Frestur til skráningar er til og með 18.janúar. Keppnisgjaldið er kr. 4,000 Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum félag sitt á þetta mót. Keppt verður í karla og kvennaflokki í báðum greinum. Keppendur fá aðgangspassa sem gildir á allar keppnisgreinar leikanna. Nánar á www.rig.is