Ásgeir vann í Þýskalandi
Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður var að ljúka keppni hjá liði sínu TSV Ötlingen í Þýskalandi. Þetta er önnur helgin á þessu keppnistímabili sem hann heldur utan til keppni með liði sínu í Bundesligunni.
Ásgeiri gekk fanta vel um helgina. Í gær var skorið frábært 388 stig en mótherinn hans Aadreas Riedener skoraði 377 stig .
Keppti TSV Ötlingen við SV Altheim Waldhausen og vann Ötlingen þá viðureign 3 – 2.
Rétt í þessu var að ljúka viðureign TSV Ötlingen við SSG Dynamit Furth.
Ásgeir vann sína viðureign við Alessio Torracchi með mjög góðu skori 386 stig á móti 377 stigum Alessio.
Ötlingen tapaði viðureigninni 4-1

