Íslandsmót í Staðlaðri skammbyssu í Egilshöll
Íslandsmótið í Staðlaðri skammbyssu fer fram í Egilshöllinni á laugardaginn kemur. Alls eru skráðir til leiks 17 keppendur. Mótið hefst kl. 10:00. Keppt er með cal.22lr skammbyssum og skotið á 25 metra færi, 4×5 skotum á 150 sek, 4×5 skotum á 20 sek og 4×5 skotum á 10 sekúndum eða alls 60 skotum.


