Skotkeppnin á RIG í Egilshöllinni

Skotíþróttakeppni RIG-Reykjavíkurleikanna fer fram í Egilshöllinni í dag. Í loftskammbyssu setti Jórunn Harðardóttir nýtt Íslandsmet í kvennaflokki, 557 stig og Ingibjörg Ylfa Gunnarsdóttir, 374 stig, í unglingaflokki kvenna, en breyting varð á reglum Alþjóða skotíþróttasambandsins ISSF í kvennakeppninni frá áramótum þannig að konur skjóta nú jafnmörgum skotum og karlar, 60 alls. Úrslitin hefjast kl.15:00 í dag.

Í loftriffli setti Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur nýtt Íslandsmet í kvennaflokki , 604,9 stig og Viktoría Erla Þ. Bjarnarson, 562,3 stig í unglingaflokki kvenna. Úrslitin hefjast kl.16:15.

Úrslit mótsins liggja nú fyrir og sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR í loftrifflinum með 239,7 stig sem er nýtt Íslandsmet kvenna í final, í öðru sæti hafnaði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 223,9 stig og í þriðja sæti varð Helgi S. Jónsson úr Skotdeild Keflavíkur með 198,9 stig.

Í loftskammbyssu sigraði Jórunn einnig með 219,0 sem einnig er nýtt Íslandsmet í final, í öðru sæti varð Elías M. Kristjánsson úr SkotfélagiAkranes með 207,5 stig og þriðji varð Karl Kristinsson úr SR með 188,7 stig.

Í lok móts valdi mótsstjórn skotkonu mótsins Jórunni Harðardóttur og skotkarl Guðmund Helga Christensen.

2018rigurslitar60r

2018rigviktoria

2018rigar60123

2018riggudmhelgichristensen

2018rigingibjorgylfagunnarsdottir02web

2018rigloftriffill123mrifflaweb

2018rigloftriffill123web

2018rigloftskammbyssa123web

2018rigloftundankeppnin