RIG leikarnir í Reykjavík 2.og 3.febrúar 2019
Skráning keppenda á RIG-leikana stendur nú yfir og lýkur sunnudaginn 27.janúar 2019. Skráning sendist á
sr@sr.is
og
sti@sti.is
Verður keppt í loftskammbyssu og loftriffli 2. og 3. febrúar. Keppt verður í blönduðum flokki þar sem allir keppendur skjóta 60 skotum. Efstu 8 keppendurnir í hvorri grein keppa síðan til úrslita í útsláttakeppni.
Keppni fer fram í sal 2-4 í Laugardalshöllinni !

