Lokað á Álfsnesi og í Egilshöll næstu vikurnar

TILKYNNING FRÁ STJÓRN SKOTFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Í ljósi nýrra aðgerða stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur stjórn félagsins ákveðið að loka svæðum þess í Álfsnesi og í Egilshöllinni fyrir almennar æfingarfrá og með deginum í dag og þar til eftir páska. Fyrsti opnunardagur í Egilshöllinni verður því þriðjudagurinn 14. apríl og á Álfsnesi laugardaginn 18. apríl,nema annað verði ákveðið.