Opinn íbúafundur um Álfsnes
Skotæfingasvæðið á Álfsnesi. Breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.
Opinn íbúafundur í Klébergsskóla miðvikudaginn 10. apríl kl. 17.30
Á fundinum verður kynnt tillaga að breytingu á aðalskiplagi varðandi skotæfingasvæðið og framtíð svæðisins rædd.
Markmið breytingar er að skapa skilyrði fyrir starfsemi skotfélaganna sem nú er til staðar á svæðinu, til skemmri tíma litið, meðan unnið er að því að finna framtíðarsvæði fyrir skotíþróttir á höfuðborgarsvæðinu.
Umrædd breytingartillaga er nú í auglýsingu (sjáwww.skipulagsgatt.is) og hefur frestur til þess að gera athugasemdir verið framlengdur til 18. apríl nk.

