Jórunn og Elísabet Íslandsmeistarar í dag
Íslandsmeistaramótið í Loftskammbyssu var haldið í Egilshöllinni í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði í karlaflokki með 232,2 stig (553), Rúnar Helgi Sigmarsson úr SKS varð annar með 224,6 stig (534) og þriðji varð Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 204,9 stig (550). Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 215,1 stig (551), Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS varð önnur með 212,2 stig (516) og í þriðja sæti varð Elísabet Xiang Sveinbjörnsdóttir úr SR með 195,6 stig (493) en hún varð jafnframt Íslandsmeistari stúlkna. Íslandsmeistari drengja varð Adam Ingi Höybye Franksson. Í liðakeppni karla varð A-sveit Skotfélags Kópavogs(SFK) Íslandsmeistari, sveit Skotfélagsins Skyttur (SKS) varð í öðru sæti og Sveit Skotdeildar Keflavíkur (SK) hlaut bronsið. Í liðakeppni kvenna sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur (SR) og sveit Skotfélagsins Skyttur (SKS) varð í öðru sæti.
Nánari úrslit má finna á úrslitasíðu STÍ.
Eitthvað af myndum eru svo hérna
Íslandsmeistarar í flokkum voru ennfemur krýndir:
| Íslandsmeistarar 2024 | |
| Karlaflokk | Ívar Ragnarsson |
| Kvennaflokk | Jórunn Harðardóttir |
| Drengir | Adam Ingi Höybye Franksson |
| Stúlkur | Elísabet Xiang Sveinbjörnsdóttir |
| Meistarafl.karla | Ívar Ragnarsson |
| 1.fl.karla | Jón Þór Sigurðsson |
| 2.fl.karla | Magnús Ragnarsson |
| 3.fl.karla | Rúnar Helgi Sigmarsson |
| 0.fl.karla | Vignir Þór Sigurjónsson |
| Meistarafl.kvenna | Jórunn Harðardóttir |
| 1.fl.kvenna | Aðalheiður L. Guðmundsdóttir |
| 0.fl.kvenna | Guðbjörg Viðja Antonsdóttir |
| Lið karla | Skotíþróttafélag Kópavogs |
| Lið kvenna | Skotfélag Reykjavík |
