Áramótið í riffli…
Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur skotmót, Áramótið, mánudaginn 31.desember á svæði félagsins á Álfsnesi. Vegna takmarkaðs birtutíma þurfa menn að vera tilbúnir að hefja keppni kl 11:00. Keppni ætti að ljúka upp úr kl 14. Skráningu á mótið lýkur fimmtudaginn 20.des !
Skotið verður af resti á 200 metra færi á „varmint for score“ skotskífur og ræður stigafjöldi úrslitum. Skotin verða samtals 25 skot…..
..sem telja til stiga en skjóta má eins mörgum „sighterum“ á til þess gerða skífu og menn vilja. Engar takmarkanir verða á búnaði eða caliberum en musslebreak verða bönnuð sökum hávaða innandyra. (ath það er engin upphitunarskífa fyrir keppnisskotin til að stytta tíman sem fer í mótið)
Skotnar verða fimm 5 skota hrinur þar sem fyrsta hrinan stendur yfir í 10 mínútur en hinar í 7 mínútur. Sá fyrirvari er gerður á þessu að ef þátttaka verður það mikil að skjóta verði í fleiri riðlum en einum – gæti mótið verið stytt vegna þess skamma tíma sem birta varir.
Keppt verður í einum flokki: „Opnum flokki“ þar sem engar þyngdartakmarkanir eru eða takmarkanir varðandi stækkun sjónauka.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin.
Skráning í mótið fer fram með tölvupósti á netfangið
sr@sr.is
Skráningafresti lýkur fimmtudaginn 20. Desember. Til að auðvelda forskráningu eru menn beðnir að tilgreina tækjabúnað og hleðslu.
Mótsgjald er kr. 1000 – allt skotfólk velkomið !

