Lög Skotfélags Reykjavíkur

1. gr.
Nafn félagsins er Skotfélag Reykjavíkur, skammstafað SR og er heimili þess og varnarþing í Reykjavík.

2. gr.
Tilgangur félagsins er þessi:

  1. Að vinna að eflingu skotíþrótta á Íslandi.
  2. Að koma upp sem bestri aðstöðu til skotiðkunar fyrir félagsmenn.
  3. Að kenna meðferð skotvopna og vinna gegn ógætilegri notkun þeirra.
  4. Að gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um þau grundvallarréttindi skotíþróttamanna, að þeim sé heimilt að eiga og nota þau skotvopn, sem ætluð eru til hverskonar íþróttaiðkunar í heiminum.

3. gr.
Félagsmenn geta þeir orðið sem eru íslenskir ríkisborgarar. Erlendir ríkisborgarar geta orðið félagar í Skotfélagi Reykjavíkur, séu þeir búsettir hér á landi. Um inntöku þeirra gilda sömu reglur og um íslenska ríkisborgara.

4. gr.
Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins og skal upphæð þess ákveðin á aðalfundi. Aðild að félaginu gildir í 1 ár frá dagsetningu greiðslu árgjalds. Skuldi félagsmaður árgjald fyrir þrjú ár, er stjórn heimilt að fella hann af félagaskrá þegar þrír mánuðir eru liðnir frá gjalddaga. Hafi félagsmaður ekki greitt árgjald sitt fyrir aðalfund, missir hann atkvæðisrétt og kjörgengi á þeim fundi, ásamt öðrum félagsréttindum. Hafi félagsmaður verið langdvölum utan félagssvæðis er stjórninni heimilt að fella niður árgjald hans. Unglingar yngri en 21 árs greiða lægra árgjald og skal það ákveðið á aðalfundi. Hjón og sambýlisfólk, sem bæði eru í félaginu, greiðir hálft árgjald hvort. Stjórn er heimilt að innheimta inntökugjald af nýjum félagsmönnum. Heimilt er að það sé allt að sama gjald og árgjald félagsins.

5. gr.
Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins, þó hann hverfi úr félaginu eða félaginu verði slitið. Enginn félagsmaður ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins með öðru en gjöldum sínum.

6. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.

7. gr.
Félagið starfar samkvæmt reglum Alþjóða skotsambandsins, ISSF, Evrópusambands skotsambanda, ESC, Skotsamband Norðurlanda, NSR, Alþjóða haglabyssusambandsins, FITASC, Alþjóða silúettuskammbyssusambandsins, IHMSA, Alþjóða silúettusambandsins, IMSSU, Alþjóðasambands “ Bench Rest “ skotmanna, IBS, Alþjóðasambandi BR50 WRABF og Skotíþróttasambands Íslands, STÍ. Stjórn getur þó sett sérstakar reglur um innanfélagsmót og skapað aðstöðu til æfinga á skotíþróttum sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar.

8. gr.
Stjórn félagsins skal setja reglur um keppnisverðlaun. Stjórn er heimilt að veita viðurkenningar fyrir störf í þágu félagsins, eða íþróttaafrek unnin á vegum þess. Um viðurkenningar og heiðursfélaga, skal setja reglugerð sem samþykkja skal á aðalfundi. Stjórn félagsins er heimilt að afturkalla slíkar viðurkenningar og heiðursfélaganafnbætur, ef viðkomandi einstaklingur hefur, að mati stjórnar, valdið félaginu sem og skotíþróttinni í heild, álitshnekki.

9. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Í varastjórn skal kjósa tvo menn. Formaður er kosinn til tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára, og skulu aðeins kosnir tveir stjórnarmenn og einn varamaður í senn, enda eigi þá tveir stjórnarmenn og einn varamaður eftir eitt ár af sínu kjörtímabili. Á fyrsta starfsfundi sínum skal nýkjörin stjórn skipta með sér verkum. Stjórnarkosning fer fram á aðalfundi og skal kosið skriflega bundinni kosningu milli þeirra sem stungið hefur verið upp á. Verði atkvæði jöfn skal kosning endurtekin. Allir félagsmenn eru kjörgengir við kosningu til stjórnar. Láti stjórnarmaður af störfum á kjörtímabili sínu, skal varamaður kallaður til starfa í stjórn sem þá skiptir með sér verkum að nýju ef nauðsyn krefur.

10. gr.
Stjórnarfundi skal halda reglulega. Formaður eða þrír stjórnarmenn geta boðað til stjórnarfundar. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Stjórnarfundur er löglegur ef þrír stjórnarmenn eru mættir, þar með formaður eða varaformaður, enda hafi allir stjórnarmenn verið boðaðir til fundarins. Formaður eða sá sem hann ákveður, skal boða til stjórnarfunda. Fundurinn er lögmætur ef til hans er boðað samkvæmt starfsvenjum stjórnar sem ákveðnar skulu á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Ef brýna nauðsyn ber til getur stjórnarmaður krafist þess að stjórnarfundur verði haldinn og skal þá til hans boðað innan sólarhrings frá því formanni barst um það krafa.

11. gr.
Stjórnin hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins á milli aðalfunda. Stjórn skiptir með sér verkefnum og ákveður starfstilhögun hverju sinni. Stjórn getur tekið launaða aðstoð, en sjálf vinnur hún launalaust.

12. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda á tímabilinu 1.mars til 1.maí ár hvert. Til almennra félagsfunda skal boðað þegar þörf þykir að dómi meirihluta stjórnar eða þegar minnst 25 félagsmenn óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. Aðalfund og félagsfund skal boða með a.m.k. viku fyrirvara, með auglýsingu í a.m.k. tveimur dagblöðum eða kynna á sem víðtækastan hátt fyrir félagsmönnum. Á félagsfundum má gera ályktanir, samþykkja áskoranir til stjórnar o.s.frv. en ekki afgreiða nein mál sem heyra undir aðalfund, samkvæmt lögum þessum. Í fundarboði skal greina frá fundarefni. Stjórn skal halda félagsfund ekki síðar en 30 dögum eftir að henni barst um það beiðni, skv. 2. mgr.

13. gr.
Aukaaðalfund skal halda ef meirihluti stjórnar telur nauðsynlegt og skal til hans boðað með sama hætti og aðalfundar og hafa þeir sama vald enda sé fundarefni tilgreint í fundarboði

14. gr.
a. Tillögur til lagabreytinga skal afhenda stjórn félagsins fyrir 1.desember og birtir stjórnin félagsmönnum þær með fundarboði. Ekki verða greidd atkvæði um aðrar tillögur til lagabreytinga en þær sem birtar eru með fundarboði og breytingartillögur við þær. Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins sem síðar koma fram, undir dagskrárliðnum lagabreytingar ef 2/3 hluti atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.

b. Tilkynningar um framboð til stjórnar og formanns skulu berast fráfarandi stjórn eigi síðar en 15.febrúar. Hafi ekki nægilegur fjöldi gefið kost á sér á þeim tíma, er stjórn heimilt að framlengja framboðsfrestinn, enda sé það auglýst á heimasíðu félagsins.

15. gr.
Á aðalfundi skal stjórn félagsins gefa skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári og leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins sem legið hafa frammi til athugunar á þeim stað sem stjórnin ákveður, í eina viku fyrir aðalfund.

16. gr.
Þessi eru störf aðalfundar:

  1. Fundarsetning
  2. Fundarstjóri kosinn.
  3. Fundarritari kosinn.
  4. Heiðursveitingar.
  5. Skýrsla stjórnar.
  6. Nefndir gera grein fyrir störfum sínum.
  7. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
  8. Lagabreytingar.
  9. Fundarhlé
  10. Stjórnarkosning
  11. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
  12. Ákvörðun árgjalda
  13. Önnur mál
  14. Fundargerð skal birt á heimasíðu félagsins, eigi síðar en 15 dögum eftir aðalfund.
  15. Fundarslit.

17. gr.
Stjórn félagsins skal setja reglur um æfingar, ásamt sérstökum reglum um öryggi og umgengni á æfingasvæðum félagsins og er félagsmönnum skylt að hlíta þeim. Stjórn skipar æfingastjóra í hverri íþróttagrein að fengnum tillögum nefndarformanns og skal hann sjá til þess að æfingin fari fram samkvæmt æfingareglum, sbr. 1.mgr. Um viðurlög við brotum samkvæmt 1. mgr. vísast til laga ÍSÍ. Félagsfundi er heimilt að víkja mönnum varanlega af æfingum í félaginu eftir ítrekuð brot samkvæmt 1. mgr. og ræður þar meirihluti atkvæða. Brottrekinn félagsmaður getur áfrýjað slíkri ákvörðun félagsfundar til aðalfundar, eða aukaaðalfundar skv. 13. gr. og er stjórn skylt að verða við ósk hans um það efni.

18. gr.
Stjórn félagsins skal skipa starfsnefndir fyrir þær greinar sem stundaðar eru á vegum þess svo og ritnefnd og aganefnd, sem skal fjalla um meint agabrot félagsmanna. Stjórn er heimilt að skipa aðrar nefndir sér til aðstoðar. Nefndarformenn skulu skila starfsskýrslum til stjórnar, ekki síðar en viku fyrir aðalfund.

19. gr.
Málgagn félagsins er heimasíða þess, sem er á slóðinni www.sr.is. Þar eru reglulega birtar allar nauðsynlegar upplýsingar um félagið. Stjórn skipar ritstjóra síðunnar en er sjálf ábyrg fyrir innihaldi hennar.

20. gr.
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með 2/3 hlutum atkvæða hið minnsta, sbr. 13. gr. og 14. gr.

21. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi og með samþykki meirihluta allra félagsmanna, sbr. einnig 13. gr. og 5. gr.

22. gr.
Stjórn félagsins skal skila STÍ skýrslu um innanfélagsmót sbr. lög og reglur ÍBR.

23. gr.
Að öðru leiti vísast til áhugamannareglna ÍSÍ og ÍBR.

24. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.


Samþykkt á aðalfundi Skotfélags Reykjavíkur 31.júlí 2017
LÖG SR 2017