Skotskýli Álfsnesi

Öryggisreglur í skotskýli á Álfsnesi

Þeir sem koma í skotskýlið félagsins til æfinga eða keppni er skylt að hafa byssur í töskum og/eða þar til gerðum umbúðum og skal meðferð þeirra vera eftirfarandi:

Ávallt: hlaup upp, byssa opin og óhlaðin, merki í skothólfi og (orange) öryggisvesti áður en farið er út á skotbana.

  1. Þegar byssa er tekin upp úr tösku skal það vera greinilegt að hún er opin og óhlaðin.
    • Riffill með boltalás skal vera án bolta í töskunni þegar hún er opnuð og aðeins má hafa boltann í riffli þegar viðkomandi er að skjóta. Óheimilt er að skilja bolta eftir í riffli þegar viðkomandi fer frá skotborði eða skotlínu. Óheimilt er að setja bolta í riffil þegar gengið er frá honum í tösku eftir æfingu.
    • Byssa með hálfsjálfvirkum lás, pumpulás, griplás, rúllulás, lamarlás eða annarri gerð lása, skal hafa þar til gert merki í áberandi lit í skothólfi þegar taskan er opnuð, sem sýnir greinilega að lás hennar er opinn og byssan óhlaðin. Óheimilt er að skilja byssu eftir á skotborði eða við skotlínu án merkis. Óheimilt er að ganga frá byssu í tösku eftir æfingu án merkis.
  2. Ávallt skal vísa hlaupi upp þegar byssa er tekin úr tösku og aldrei má beina hlaupi annað en upp, þar til viðkomandi setur byssu á skotborð og/eða tekur sér stöðu við skotlínu. Hlaup skal ávallt vísa að skotmarki og hlaupendi skal ná fram yfir skotlínu við æfingar og/eða keppnir. Meðhöndla skal byssu á sama hátt þegar gengið er frá henni í tösku eftir æfingu.
  3. Öll meðhöndlun á byssum er óheimil utan skotlínu eða skotborðs, nema með leyfi skotstjóra.
  4. Eftir að rauða ljósið er kveikt, sem táknar að heimilt er að ganga út á skotbana til að skipta um skotmörk, skulu allar byssur vera opnar og óhlaðnar samkvæmt reglum 1) a. og 1) b. Óheimilt er að ganga yfir rauðu línuna að skotborðum eða skotlínu á almennum æfingum á rauðu ljósi. Á skotmótum og keppnisæfingum má skotstjóri heimila undantekningu frá þessari reglu, enda allar byssur opnar og óhlaðnar samkvæmt ofangreindum reglum.
  5. Óheimilt er að fara út á skotbana án (orange) öryggisvesta félagsins.
  6. Á æfingum í skotskýlinu er óheimilt að hlaða byssu fleiri en einu skoti í einu.
    • Hlaðið magasín er skilgreint sem hlaðin byssa.
    • Tvíhleypta riffla má hlaða tveimur skotum í einu og skal tilkynna það til skotstjóra áður en æfing hefst.
    • Í þeim greinum þar sem hlaða þarf í magasín á æfingum, gilda reglur viðkomandi greinar og stjórnar skotstjóri þeim.
  7. Öryggisreglur sem kunna að ganga lengra í einstaka greinum gilda á viðkomandi æfingu.

Skotstjóri stjórnar æfingum í skotskýlinu samkvæmt reglum félagsins. Brot á reglum þessum geta varðað brottrekstri. Að öðru leyti er vísað í almennar umgengis- og öryggisreglur félagsins.

16. febrúar 2013
Stjórn Skotfélags Reykjavíkur
Upprunalegt skjal: Öryggisreglur (PDF)