Haglabyssa
Compak Sport
Oftast eru notaðar tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.
Annað þarf ekki til að byrja en dæmi um annan búnað sem hjálpar virkililega má nefna sérhönnuð skotgleraugu og skotvesti.
Skotið er á leirdúfur sem kastað er með a.m.k. 6 sjálfvirkum kastvélum á breytilegu færi. Skotið er alls 100 eða 200 skotum eftir stærð móta.
Keppt í þessari greina á Heimsmeistaramótum og Evrópumótum. Á Íslandi er keppt í opnum innanfélagsmótum, Lands- og Íslandsmeistaramótum.
Skeet
Oftast eru notaðar tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.
Annað þarf ekki til að byrja en dæmi um annan búnað sem hjálpar virkililega má nefna sérhönnuð skotgleraugu og skotvesti.
Skotið er á leirdúfur sem kastað er með sjálfvirkum kastvélum úr tveimur skothúsum, marki og turni á mismunandi færi. Skotið er alls 25 skotum frá 8 pöllum sem liggja í hálfmána milli skothúsanna.
Keppt í þessari greina á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Evrópumótum og Norðurlandamótum. Á Íslandi er keppt í opnum innanfélagsmótum, Lands- og Íslandsmeistaramótum.
Mótaskrá hvers árs fyrir haglabyssugreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.
Loftbyssa
Loftskammbyssa
Mjög vinsæl skotgrein, ekki síst þar sem lítinn búnað þarf til æfinga.
Skotið er á 10 metra færi. Loftskammbyssan er einskota og skotið er 4.5 mm blýbikar.
Annan búnað en byssuna þarf ekki en ýmislegt getur hjálpað svo sem sérhönnuð skotgleraugu og skór með föstum sóla ýmist sérstakir skotskór eða lyftingaskór.
Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur fór á Ólympíuleikana 2012 og náði þar 14 sæti.
Loftriffill
Skotið er á 10 metra færi. Loftriffillinn er einskota og skotið er 4.5 mm blýbikar sem þó er aðeins þyngri en sá sem notaður er í loftskammbyssu.
Í byrjun þarf ekki annan búnað en byssuna en þegar fram í sækir er ýmislegt sem getur hjálpað frekar svo sem sérstakur jakki og buxur og uppháir skotskór.
Keppt er í loftsgreinunum á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Evrópumótum, Norðurlandamótum og Smáþjóðaleikum. Á Íslandi er keppt í þeim á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, opnum alþjóðlegum mótum, Lands- og Íslandsmótum.
Mótaskrá hvers árs fyrir loftgreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.
Riffill
50 m. Prone
50 m Prone, einnig oft talað um 50 m liggjandi – eða Enskan riffill er vinstæl riffilgrein. Erlendis er nær eingöngu keppt utanhúss en á Íslandi nær eingöngu innanhúss.
Skotið er á 50 metra færi úr liggjandi stöðu. Riffillinn er einskota og einungis skotið 22LR. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Sérstakur búnaður er ekki stranglega nauðsynlegur en eftir nokkur skot er ljóst að sérstakur skotjakki, ól til að halda við og stífa höndina sem heldur uppi rifflinum og skothanski hjálpa gríðarlega.
Ekki er lengur keppt í þessari grein á Ólympíuleikum og Heimsmeistamótum. Hins vegar er greinin enn vinsæl með klúbba og keppt í henni á minni mótum. Þessi grein er auk þess ein þriggja staða sem keppt er í í Þrístöðu, sbr. hér að neðan. Á Íslandi er keppt Prone á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, Lands- og Íslandsmótum.
300 m. Prone
Um samskonar grein er að ræða og 50 m Prone nema skotið er á skífu á 300 metra færi. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Algengasta riffil caliber er 6BR en einnig notast sumir keppendur við 2BR.
Keppt er í 300 m. Prone á Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum. Á Íslandi er keppt í Lands- og Íslandsmótum.
Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs hefur náð góðum árangri í þessari grein erlendis, m.a. var hann Evrpópumeistari 2025.
50 m. Þrístaða
Samanstendur af hnéstöðu, prone (liggjandi) og standandi stöðu. Erlendis er nær eingöngu keppt utanhúss en á Íslandi nær eingöngu innanhúss.
Skotið er á 50 metra færi. Riffillinn er einskota og einungis skotið 22LR. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Sérstakur búnaður er ekki stranglega nauðsynlegur en eftir nokkur skot er ljóst að sérstakur skotjakki, skotbuxur, skotskór, ól til að halda við og stífa höndina sem heldur uppi rifflinum og skothanski þarf til.
Keppt er í 50 m. Þrístöðu á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum.
Á Íslandi er keppt Þrístöðu á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, Lands- og Íslandsmótum.
300 m. Þrístaða
Um samskonar grein er að ræða og 50 m Þrístöðu nema skotið er á skífu á 300 metra færi. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Algengasta riffil caliber er 6BR en einnig notast sumir keppendur við 2BR.
Keppt er í 300 m. Prone á Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum. Hingað til hefur ekki verið keppt í 300 m. Þrístöðu á Íslandi.
Mótaskrá hvers árs fyrir riffilgreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.
BR50 cal.22
Benchrest rimfire eða BR50 er fyrir .22LR riffla eða loftriffla.
Skotið er af borði og með stuðningi (rest-i) að framan og aftan. Riffillinn situr í stuðningnum en má ekki vera fastur við hann. Stuðningurinn að framan má vera stillanlegur og oftast úr járni með sandpúða. Aftur stuðningurinn má vera úr sandfylltum pokum, einum eða fleirri, en ekki vera stillanlegt.
Skammbyssur
Frjáls skammbyssa
Allar cal.22lr. skammbyssur sem eru með opnum sigtum eru leyfðar svo lengi sem þær veita ekki stuðning upp fyrir úlnlið. Flestir nota sérhannaðar einskota byssur með skefti sem nær utan um hendina.
Skotið er á 50 m. færi og trúlega mesta nákvæmnisgrein skammbyssuskotfiminnar. Notuð er sama skotskífa og í 25 m greinunum.
Keppt er í frjálsri skammbyssu á Heimsmeistaramótum, Evrópumótum, Norðurlandamótum. Á Íslandi á innanfélagsmótum og Lands- og Íslandsmótum.
Gróf skammbyssa
Skotið er á 25 m. færi
Notaðar eru fjölskota hálfsjálfvirkar eða “revolver” cal.22lr. fyrir konur og 7.62 – 9,65mm fyrir karla (lágmarkshlaupvídd cal .32 er algengust). Hlauplengd má ekki vera meiri en 153 mm og á milli fram og aftursigtis má ekki vera lengra en 220 mm.
Keppnin fer fram í 2 hlutum:
Í fyrri hluta keppni er skotið 30 nákvæmnisskotum í 6 hrinum, 5 skot í hverri. Í þessum hluta hafa keppendur 6 mínútur til að ljúka við hverja hrinu.
Í síðari hluta keppni fer fram svonefnd “duell” keppni. Sem fyrr er skotið 30 skotum í 6 hrinum. Keppnin fer þannig fram að skotskífan birtist í 3 sek og er það sá tími sem keppandi hefur til að hleypa af. Að loknum 3 sek hverfur skífan aftur í 7 sek og verður keppandi þá að láta byssuna síga niður á meðan sá tími líður.
Samanlagður árangur úr báðum hlutum gefur endanlega niðurstöðu
Keppt er í grófri skammbyssu og sport skammbyssu á Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum, Evrópumótum og Norðurlandamótum. Á Íslandi á innanfélagsmótum og Lands- og Íslandsmótum.
Mótaskrá hvers árs fyrir skammbyssugreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.
