Dagný og Sólveig Íslandsmeistarar

Dagný Huld Hinriksdóttir úr SR varð Íslandsmeistari í kvennaflokki í haglabyssugreininni Compak Sporting en mótið fór fram á Akureyri um helgina. Í unglingaflokki varð Sólveig Jónsdóttir úr SR Íslandsmeistari. Lið SR varð í þriðja sæti á mótinu en það skipuðu Jón Valgeirsson, Þorri Helgason og Dagný H. Hinriksdóttir.

cs islmot 1kv

cs islmot srlid