Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfun

Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF – International Shooting Sport Federation https://www.issf-sports.org/academy Félagið styrkir þá sem mennta sig til þjálfunar hjá félaginu.
Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.
Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.
Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ, Sími; 514-4000 / 863-1399
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.